<$BlogRSDUrl$>

mánudagur, maí 17, 2004

ANDRI stóð sig með eindæmum vel á Próflokadjammi Fróða á föstudaginn!!! og gleðilegt sumar...

þriðjudagur, maí 11, 2004

Vegna áskorana frá markaðnum tók ég mig til og útbjó tribute albúm um Ása

Flestar af honum en margir vilja vera með á mynd af manninum svo fór sem fór... endilega skoðið

miðvikudagur, maí 05, 2004

Eftirfarandi tilkynning er frá fólkinu í Sögnum og frá sagnfræðingafélagi Íslands...

Föstudaginn 28. maí kl 19:30 verður haldið málþing um kennsluhætti í sagnfræði í sal ReykjavíkurAkademíunnar á 4. hæð JL hússins (Hringbraut 121). Málþingið ber yfirskriftina „Sögukennsla á villigötum?“og að því standa Sagnir, tímarit sagnfræðinema og Sagnfræðingafélag Íslands.

Hugmyndin með málþinginu er sú að stuðla að opinni umræðu um þá hugmyndafræði sem liggur að baki kennslu og miðlun sögu. Á málþinginu fá núverandi nemendur, fyrrverandi nemendur og kennarar tækifæri til þess að ræða saman um strauma og stefnur í fræðunum sjálfum og hvernig best væri að nýta nýjar hugmyndir í kennslu.

Hver er hugmyndafræði uppbyggingar kennslunnar í sagnfræðiskor HÍ? Eru aðrar leiðir við uppbyggingu sagnfræðináms færar og hafa slíkar leiðir verið ræddar? Eru yfirlitsnámskeið sagnfræðiskorar úrelt? Virkar núgildandi brautakerfi sagnfræðiskorar?
Hvaða tilgangi þjóna tímabilaskiptingar í sögu? Hvernig nýtast póstmódernsíkar hugmyndir í kennslu? Hver er staða sagnfræðiskorar innan heimspekideildar? Hvernig geta aðferðir annarra greina á borð við bókmenntafræði og mannfræði nýst sagnfræðingum?

Fimm sagnfræðingar flytja stutt erindi (15-20 mín) og að þeim loknum gefst tími til umræðna. Framsögumenn verða þau Anna Agnarsdóttir deildarforseti heimspekideildar, Eggert Þór Aðalsteinsson fráfarandi ritstjóri Stúdentablaðsins, Gunnar Karlsson prófessor, Sigrún Sigurðardóttir fræðimaður í ReykjavíkurAkademíunni og Páll Björnsson fræðimaður í ReykjavíkurAkademíunni og stundakennari við HÍ.

Að málþinginu loknu verður boðið uppá léttar veitingar [Öl og stöff] og haldið verður upp á útgáfu nýjasta tölublaðs Sagna.

sunnudagur, maí 02, 2004


miðvikudagur, apríl 28, 2004

30. apríl 05.60.05-040 Íslands- og Norðurlandasaga I 78 09:00-12:00 Árnagarður - St. 201, 301, 304 og 311

3. maí 05.60.03-040 Mannkynssaga II 84 09:00-12:00 Árnagarður - St. 201,301,304,311 og 422

13. maí 05.60.04-040 Mannkynssaga III 43 09:00-12:00 Aðalbygging - St. 111 og 222

mánudagur, apríl 26, 2004



Foooookkkk BRÚSKUR ER TÝNDUR.... flaug útum glugga rétt áðan... finnst hvergi ég er búinn að leita og leita... ekki gott... eins og að týna bróður sínum... ef þið þekkið einhvern sem býr í Árbænum endilega láta vita að hann sé týndur.....

Ég treysti á ykkur...

föstudagur, apríl 23, 2004

www.hi.is/nem/frodi Endilega tékkið á hinni geysivinsælu síðu Fróða sem mun von bráðar(eftir próf) ná nýjum hæðum í ferskleika og gamansemi!!!

sunnudagur, apríl 18, 2004

Heyrandi heyrið... FRÓÐASI FRÓÐINN TIL SÖLU eldri en flestir Hr. Kristbjörn Helgi Björnsson hefur ákveðið að bregðast við markaðnum og hafið sölu á hinni frábæru hreyfimynd FRÓÐASI FRÓÐINN fyrir aðeins 500 krónur (íslenskar á föstu gengi tengt Jóni Sigurðssyni) hvort heldur á V H S afspilun eða stafrænni(geilsadiskur fylgir). Opnað hefur verið sérstakt netfang khb@hi.is og fjárfest í farsíma 847 4107 (virg´bíls á fagmáli). Come one come all!!!

laugardagur, apríl 17, 2004

Póstur hefur verið sendur á sagnfræðinema... ég sé mér ekki fært að setja hann á opinberu heimasíðu fróða vegna þess að... af hverju ætti ég að ýta undir skrall í miðjum prófatíma?

BESTA DJAMM ANNARINNAR!
Föstudaginn 23. apríl heldur Torfhildur, félag bókmenntafræðinema, BALL í
tilefni námsloka og býður öllum félögum sínum í heimspekideild. Ballið
verður á Jóni forseta (fyrrum Vídalín) , Aðalstræti. Miðasala hefst
klukkan 22 á staðnum en hin stórskemmtilega hljómsveit Hraun! hefur sína
skemmtidagskrá klukkan 23.

Miðinn kostar bara 1000 kr og gildir sem ávísun á barnum fyrir stórum bjór!!!

Tilboðin á barnum eru afar girnileg:
stór bjór: 350 kr
rauðvíns/hvítvínsglas: 400 kr
Tequilaskot: 300 kr
önnur skot: 250 kr

Nú skal djamma!!! Og koma svo!!!!
Stuðkveðjur,
Torfhildur, félag bókmenntafræðinema

föstudagur, apríl 16, 2004



Ási biður alla að skrifa undir

fimmtudagur, apríl 08, 2004

Myndir frá síðustu kennsludögunum

föstudagur, apríl 02, 2004

Alskonar myndir frá daglegu lífi í herbúðum Sagnfræðinema

sunnudagur, mars 28, 2004

Myndir frá vísindaferð og kvöldinu á föstudag
Tilkynning frá Sagnfræðingafélagi Íslands

fimmtudagur, mars 25, 2004

Vieómaraþon næstkomandi laugardag, þann 27. mars. kl. 12:00 í stofu 301 í Árnagarði.

Sýndar verða viðhafnarútgáfur af The Fellowship of the ring.. og The two towers.

miðvikudagur, mars 24, 2004

Tilkynning, varðandi skólagjöld, frá aðalfundi Fróða var birt í dag í Morgunblaðinu! Án efa stærsta stund Fróða á fjölmiðlamarkaðnum.
ha

þriðjudagur, mars 23, 2004

ha
Andri er svo frábær að teikna... endilega lesið auglýsinguna

og Myndir frá mótmælum

laugardagur, mars 20, 2004

Eftirfarandi ályktun var samþykkt á aðalfundi Fróða, félags sagnfræðinema, í gær, 19. mars 2004.

„Aðalfundur Fróða, félags sagnfræðinema, hafnar öllum tillögum um að skólagjöld verði tekin upp við Háskóla Íslands.
Það er skoðun fundarins að skólagjöld munu skerða fjárhag allra nemenda við skólann, jafnframt því að skólagjöld, óháð því hvað upphæðirnar kunna að verða háar, óumflýjanlega verða þess valdandi að jafnréttið til náms, sem Íslendingar hafa unnið að áratugum saman, muni að engu verða. Þetta álítur fundurinn ranga stefnu, því allir eiga að hafa möguleika á því að stunda það nám þar sem áhugi þeirra og hæfileikar liggja, óháð fjárhagslegri og félagslegri stöðu.
Því hvetur Fróði, félag sagnfræðinema, háskólayfirvöld, menntamálaráðherra og alþingismenn til þess að íhuga alla möguleika á að leysa fjárhagsvandamál Háskóla Íslands, á slíkan hátt að það skerði ekki jafnrétti til náms, líkt og skólagjöld munu gera.”
Mikið að gerast í gær... ný stjórn komin til valda... Atli Formaður, Andri Gjaldkeri, Edda ritari, Asþór meðstjórnandi og ég (hinn venjulegi Jón í sagnfræðinni) vefari... annars þarf ég að nálgast fundargögn og skella þeim á netið við tækifæri... fleiri fengu embætti en ég bara er ekki klár á því ég veit bara að Hjalti er í nokkrum embættum, Krissi og Silli í einhverju og einhver Vífill er eitthvað.

Myndir frá Ársfundinum í gær... gjörsövel

Allt annað er aukaatriði.............

fimmtudagur, mars 18, 2004

Vísindaferð til BNA á morgun... Aðalfundur seinna á Jóni Forseta... mættu eða hættu
Myndir frá 5. mars... Hjalti tók

miðvikudagur, mars 17, 2004

Kassinn
Kassinn góði og daglegt líf í Árnagarði myndir hér

„Ég hefði nú ekkert á móti því að vinna svona kassa...“ mælti Andri (Stiftamtmaður) svo, þungur á brún!

þriðjudagur, mars 16, 2004

Að sjálfssögðu....... og þú líka

miðvikudagur, mars 10, 2004

Buxurnar sem Andri kom í í skólann... sagði það væri vegna veðmáls.... auk annarra mynda frá daglegu - ekkert að gerast í Árnagarði -
Vísindaferðir á næstunni...

Föstudaginn 19. mars klukkan 17:00 verður farið í vísindaferð í bandaríska sendiráðið. Fróðameðlimir hafa forgang og komast 25 með. Skráningu lýkur 16. mars og er hún bindandi. Um kvöldið verður svo Aðalfundur Fróða.

Föstudaginn 26. mars klukkan 17:00 verður svo farið í Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Nánar auglýst síðar...
Velgengni myndarinnar sem sýnd var á Árshátíðinni hefur ekki
farið framhjá neinum. Maggi var þar í aðalhlutverki... þegar hann var spurður hvernig nýtilkomin frægð hefði nýst honum við dagleg störf sagði maðurinn ... „Ég er búinn að hafa svo mikið að gera að ég er kominn með sigg á tittlinginn!“

laugardagur, mars 06, 2004

Myndir frá Árshátíðinni í gær komnar á netið.... gjörisovel

föstudagur, mars 05, 2004

Rafpóstur frá Formanni Fróða

„Kæru árshátíðargestir!

Á föstudaginn næst komandi, 5. mars, mun Fróði halda árshátíð sína og ert
þú einn þeirra heppnu sem tryggt hafa sér miða.

Árshátíðin fer fram í Listhúsinu Laugardal, Engjateig 17-19, og er ball eftir
miðnætti í Þjóðleikhúskjallaranum. Listhúsið opnar kl 19:00 en áður verður
haldið teiti á Kleppsvegi 48 hjá Evu og Stefáni. Teitið hefst kl. 17:00
(ekki 16, eins og stendur á auglýsingu í anddyri Árnagarðs), Fróði mun
bjóða gestum upp á létta drykki og ætti að vera nóg til handa öllum. Þaðan
verður farið með langferðarbíl í Listhúsið, svo ef þú finnur partíið
þarftu ekki að hafa frekari áhyggjur af staðsetningu árshátíðarinnar.

Listhúsið hefur gefið okkur leyfi til þess að koma með eigin drykki með
matnum. Ekki er ætlast til að fólk komi með veitingar nemi aðeins það sem
drekka á með og fyrir matinn. Eftir borðhald verður barinn opinn og verður
hægt að gæða sér á ýmsum góðum guðaveigum þar á kostakjörum.

Að lokum er gott að minna fólk á að taka fallega miðann sinn með sér, því
aldrei er að vita nema það skili sér í óvæntum vinning...

Sjáumst á föstudaginn,
Kalli“

fimmtudagur, mars 04, 2004

Myndir frá Spurningakeppninni
Ási - gott kaffi


daddara, bara komin ný bloggsíða.

Eftir ekki fleiri daga en ... ööö á föstudaginn verður árshátíð sagnfræðinema og RÚST hvað sem það nú er? Skiptir engu mér var tjáð það væri uppselt er það rétt?

This page is powered by Blogger. Isn't yours?